Meðgöngu Plan Vika 35 - 39




Framhald af síðasta prógrami, en með breytingum og aðlögun að stækkandi kúlu og líkamlegum breytingum. Þriðji hluti meðgöngu felur í sér enn frekari breytingar og líðan svo það er mikilvægt að taka tillit til þátta sem að líkaminn kallar á. Fræðslan er á sínum stað með auka köflum fyrir þetta stig meðgöngunnar + fræðsluvideo.


4 æfingadagar, Mobility æfingar og leiddir tímar, teygjur og slökun fyrir grindarbotn. Allar æfingar innihalda video með útskýringum og aðlögun æfinga / aðrar æfingar ef að eitthvað hentar ekki. Aukin fókus á mjúkar æfingar (yfir 30) eins og birth prepp æfingar fyrir lokasprettinn. Þjálfarinn sýnir æfingarnar og er sjálf komin 35 - 39 vikur á leið.